Fara í meginmál

Vinnuvélar og lyftarar

Vélaborg er umboðsaðili CASE Construction Equipment, Hyster og CVS Ferrari á Íslandi og þjónustar tækin á eigin verkstæði.

Umboðin okkar

Við bjóðum nýjar vinnuvélar og lyftara frá framleiðendum sem eru vel þekktir á íslenskum markaði. Val á tæki fer eftir verkefninu — við förum yfir notkun, burðargetu og aðstæður áður en tilboð er gert.

  • CASE CE — vinnuvélar fyrir verktaka, sveitarfélög og iðnað
  • Hyster — lyftarar fyrir vöruhús, framleiðslu og hafnarsvæði
  • CVS Ferrari — gámalyftarar og þung meðhöndlunartæki

Myndir

CASE CE vinnuvélarHyster lyftararCVS Ferrari gámalyftarar

Þjónusta fylgir tækinu

Verkstæði Vélaborgar sinnir uppsetningu, reglubundnu viðhaldi og viðgerðum. Varahlutalager og aðgangur að varahlutum frá framleiðendum tryggir að tæki komist sem fyrst aftur í notkun.

Þarftu tilboð eða ráðgjöf?

Hringdu eða sendu fyrirspurn og við gerum tilboð í tæki eða þjónustu.

Hringja: 414 8600