Fara í meginmál

Um okkur

Vélaborg ehf selur og þjónustar vinnuvélar, lyftara og vöruhúsabúnað fyrir íslensk fyrirtæki. Starfsemin er í Sundaborg 1 í Reykjavík.

Starfsemin

Vélaborg er umboðsaðili CASE CE, Hyster og CVS Ferrari og útvegar vöruhúsalausnir frá STOW, A1S, ASAFE og Assa Abloy Entrance. Auk sölu á nýjum tækjum seljum við notaðan búnað og rekum eigið verkstæði.

Sala er opin mánudaga til fimmtudaga 8:30–17:00 og föstudaga 8:30–16:00. Verkstæðið er opið mánudaga til fimmtudaga 8:00–16:00 og föstudaga 8:00–15:30.

Saga fyrirtækisins

Vélaborg hóf starfsemi sína í janúar 2009. Síðan þá hefur félagið sinnt þjónustu og innflutningi vinnuvéla og tækjabúnaðar fyrir hina ýmsu geira atvinnulífsins sem og einstaklinga.

Varahlutaþjónusta Vélaborgar er ekki einskorðuð við umboð fyrirtækisins, heldur leggjum við metnað okkar í að aðstoða viðskiptavini við öflun varahluta og rekstrarvara á mjög breiðu sviði.

Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum hópi samstarfsaðila utan landsteinanna, hvort sem er við miðlun varahluta eða innflutning vinnuvéla og búnaðar.

Starfsfólk Vélaborgar er samhentur hópur með áralanga reynslu í verslun með vélbúnað og þjónustu við hann — reynsla sem nýtist bæði fyrirtækinu og viðskiptavinum þess.

Þarftu tilboð eða ráðgjöf?

Hringdu eða sendu fyrirspurn og við gerum tilboð í tæki eða þjónustu.

Hringja: 414 8600