Fara í meginmál
Um okkur

Umhverfis- og öryggisstefna

Það er stefna Vélaborgar að öryggi starfsmanna sé forgangsmál og að starfsemin valdi ekki skaða á umhverfinu.

Stefnan

Það er stefna Vélaborgar að öryggi starfsmanna sé forgangsmál. Sama gildir um aðra sem koma að starfsemi félagsins, þ.e. starfsmenn verktaka, gesti eða aðra.

Einnig er það stefna félagsins að starfsemin valdi ekki skaða á umhverfinu.

Starfsmenn skulu ávallt starfa í samræmi við viðeigandi vinnuferla, lög og reglur um öryggi og verndun umhverfisins. Starfsmenn skulu vernda sjálfa sig, samstarfsmenn sína, farþega, vörur sem félaginu er trúað fyrir, búnað og umhverfi fyrir skaða.

Meginmarkmið

  • 01 / AtriðiAð vinnuaðstaða starfsmanna sé örugg og heilsusamleg
  • 02 / AtriðiAð reksturinn sé í samræmi við landslög, alþjóðareglur og samþykktir og aðra viðeigandi og viðurkennda staðla og viðmiðanir

Aðgerðir

Þessum markmiðum er ætlunin að ná með eftirfarandi aðgerðum:

  • 01 / AtriðiAð ákvarða og æfa viðbrögð við skilgreindri hættu
  • 02 / AtriðiStuðla að öruggum vinnuaðferðum og vinnuumhverfi
  • 03 / AtriðiViðhalda öryggisvitund, sjálfsaga og ábyrgðartilfinningu starfsmanna með aðstoð skipulagðs og skjalfests þjálfunarkerfis
  • 04 / AtriðiAuka hæfni starfsmanna í öryggismálum með fræðslu og þjálfun
  • 05 / AtriðiHalda starfsmönnum upplýstum um áhættuþætti í rekstri sem snerta þá sjálfa, samstarfsmenn og/eða umhverfið
  • 06 / AtriðiTryggja samræmi milli skráðra vinnuferla og raunverulegra vinnubragða hverju sinni með innri athugunum og eftirliti
  • 07 / AtriðiFylgjast með lögum og reglum, stöðlum og viðurkenndum viðmiðunum sem eiga við starfsemi félagsins og tryggja að unnið sé í samræmi við þau
Hringja: 414 8600