Fréttir
Fréttir og tilkynningar frá Vélaborg.
24.02.2025
Vélaborg flytur í Sundaborg
Vélaborg flytur alla starfsemi sína í Sundaborg 1, 104 Reykjavík. Erum því með verslun, skrifstofu og verkstæði á sama stað. Við hlökkum til að hitta viðskiptavini okkar á nýjum stað.
24.03.2022
Verk og vit 2022
Vélaborg er með bás á Verk og vit 2022. Væri gaman að sjá sem flesta okkar viðskiptavina þar þótt aðaláherslan sé á árekstrarvarnir og Assa Abloy iðnaðarhurðir, vörubryggjur, hleðsluskýli og veðurhlífar.
23.12.2021
Gleðileg jól!
Við óskum þér og þínum gleðilegrar hátíðar og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Jólakveðjur, starfsfólk Vélaborgar.
21.01.2020
Vélaborg flytur … en ekki langt
Vélaborg flytur heimilisfang sitt frá Járnhálsi 2 að Krókhálsi 5f. Í rauninni erum við bara að flytja okkur í næsta hús innar í Járnhálsinum hinum megin við malarplanið, þannig að við erum enn í sömu götu þótt heimilisfangið gefi annað til kynna.

09.03.2017
Nýr gámalyftari til KLAFA
Nýr gámalyftari afhentur KLAFA.

18.08.2016
Jarðval fær nýja CASE
Þeir voru kampakátir Árni og Steini hjá Jarðvali með nýju CASE CX350D beltagröfuna sem afhent var nú á dögunum. Við hér hjá Vélaborg óskum Jarðvalsgenginu innilega til hamingju með nýju græjuna.
28.04.2016
KR Ólafsson ehf tekur við nýrri CASE
KR Ólafsson ehf tók við nýrri CASE vinnuvél frá Vélaborg.

10.01.2014
Samskip styrkir lyftaraflotann með Jungheinrich
Samskip bætti Jungheinrich lyfturum við flota sinn.

13.04.2013
Eimskip kaupir Kalmar
Eimskip festi kaup á einum Kalmar DRF 450-60S5X gámalyftara og tveimur Kalmar TR618i dráttarklárum nú á dögunum. Verða þessi tæki í notkun hjá Eimskip í Sundahöfn og eru þau pöntuð með þarfir Eimskips í huga.
Þarftu tilboð eða ráðgjöf?
Hringdu eða sendu fyrirspurn og við gerum tilboð í tæki eða þjónustu.
